Saga 103
Kópavogsfundur
Verkefni

Auk skjalanna þarf Íslandssögu a-ö eftir Einar Laxness og Íslenskan söguatlas I.

  1. Gerið lista yfir þau loforð sem menn gáfu með einveldisskuldbindingunni (bls. 4).

  2. Hvaða þrír menn stjórnuðu Íslandi í raun fyrir hönd konungs eftir erfðahyllinguna (Íslenskur söguatlas)?

  3. Hverjir skrifuðu undir einveldisskjalið (Íslandssaga a-ö)?

  4. Hvernig má skilja persónulega athugasemd skrifarans: O tempora, o mores! (Hvílíkir tímar! Hvílíkir siðir!) (bls. 5)?

  5. Er þessi atburður sá merkilegasti sem hefur átt sér stað í Kópavogi?