Erfðahyllingareiðurinn

Skjalið

Skjalið er varðveitt Þjóðskjalasafni í skjalasafni Öxarárþings, Alþingisbók frá Bjarna Þorsteinssyni.

Texti erfðahyllingareiðsins er ekki til í frumriti en hér er hann tekinn eftir alþingisbók í Þjóðskjalasafni.

Efni skjalsins

Á Kópavogsfundinum 1662 gengu Íslendingar undir einveldi Danakonungs en það hafði hann þegar fengið í Danmörku tveimur árum fyrr. Ætlast var til að gengið yrði frá málum á alþingi en höfuðsmaðurinn, Henrik Bjelke, kom ekki til landsins í tæka tíð.

Ýmist er talað um erfðahyllingareið eða einveldisskuldbindinguna. Textinn er til í nokkrum afritum. Hér er eiðurinn í alþingisbók, sem óvíst er hver ritað hefur, og má benda á síðustu orðin á blaðsíðunni "O tempora! o mores!" (Ó tímar, ó siðir!) sem bera vitni um dapurt hugarástand skrifarans.

Sögulegt baksvið

Kópavogsfundurinn fór fram í Kópavogi árið 1662. Á Kópavogsfundi viðurkenndu Íslendingar einveldi Danakonungs og höfðu Brynjólfur Sveinsson Skálholtsbiskup og Árni Oddsson lögmaður forystu fyrir landsmönnum þar. Með tímanum komst allt ríkisvald (löggjafarvald, framkvæmdavald og æðsta dómsvald) í hendur konungs og embættismanna hans. Í raun var kóngur þó farinn að ráða því sem hann kærði sig um á Íslandi löngu fyrr og viðurkenning einveldisins var fremur formsatriði en breyting.

Forsaga málsins er sú að ári áður hafði Danakonungur ákveðið að svipta aðalinn öllum völdum og stofna konungseinveldi í ríki sínu í samstarfi við borgara Kaupmannahafnar. Íslendingar samþykktu hið sama á Kópavogsfundi með því skilyrði að þeir fengju að halda fornum lögum sínum, frelsi og rétti. Það virðist einkennileg krafa þegar þess er gætt að allt átti þetta að hverfa með einveldisskuldbindingunni.
Kópavogsfundurinn hlaut óvænta athygli löngu síðar þegar Jón Sigurðsson sjálfstæðishetja dró fram í dagsljósið tvo bréfmiða sem Árni Magnússon handritasafnari hafði skrifað nokkrum áratugum eftir fundinn. Þar segir að Brynjólfur biskup og Árni Oddsson hafi verið neyddir til að skrifa undir skuldbindinguna með vopnavaldi, Árni hafi streist á móti heilan dag en loks látið undan og undirritað skjalið grátandi. Þótti 19. aldar mönnum þetta talandi dæmi um svívirðilega framkomu Dana gagnvart Íslendingum í gegnum tíðina.

(Byggt á riti Gunnars Karlssonar, Kóngsins menn. Reykjavík 1990, Mál og menning).

Heimildir